Lesstofuborð nr. 50 er hefur hýst mig undanfarin þrjú ár, var í gær sæmt þeim titli að vera hetja vikunnar. Það var krýnt í gær, og heiðursverðlaunin sóma sér vel á borðinu enda hefur það þurft að þola þungar byrðar undanfarnar vikur. Teygt, togað og lúið undir pressunni. Eins og sjálfið mitt, enda erum við eitt.
Jú, þetta borð hefur þurft að þola hálft bókasafn Lögbergs og alltof marga hálfdrukkna kaffibolla, pappírsflóð og almennt óskipulag. Mönnum er missýnt um afrakstur vinnu minnar sökum þessa, en við borðið mitt þekkjum tímana tvenna og förum í orrustur til að vinna og þá er allt langt undir. Við höfum átt í góðu og farsælu sambandi, jafnan með góðum árangri. Tryggð og traust hefur einkennt okkar samveru og hef ég haldið föstum trúnaði við þessa elsku.
Ég heyrði góða samlíkingu í gær: A messy desk represents a messy mind, so what does an empty desk represent?
Af þeim ástæðum hef ég einsett mér að hafa eins mikið um að vera og hægt er á borðinu, með fullu samþykki þess, en að mínu mati, er verra að vera með tómahljóð frekar en hringl í toppsettinu!
Elsku lesstofuborð nr. 50, þessi örfáu orð er arían mín til þín. Ég veit að þú brosir í gegnum allt draslið og fagnar þeim árangri sem við höfum náð saman. Þú býrð þig nú undir næstu orrustu með annan í forystu, Fulla ferð áfram! Það er með sorg og trega sem við skiljum en nú er tími til að hefja næsta ferðalag.